Verkefni og keppnir

Á þessari síðu er tekin saman helstu verkefni og keppnir sem á einhvern hátt tengjast viðfangsefnum náttúrugreina, hvort sem þetta er fyrir einstaklinga, bekki eða skóla.

Dagur íslenskrar náttúru er 6. september.  2019 voru útbúin verkefnablöð sem finna má hér fyrir neðan. Í tilefni af deginum er boðið upp á ýmsa viðburði víða um land. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur haldið upp á daginn, meðal annars með því að bjóða upp á náttúrugripagreiningar og gönguferðir um hraunið í nágrenni stofnunarinnar í Garðabæ.

Grænfáninn  Skólar á grænni grein, grænfánaverkefnið er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi.  Þetta verkefni er fyrir heila skóla, þeir vinna sjö stig og sækja svo um að vera grænfánaskóli. Markmið verkefnisins er að auka umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og að styrkja umhverfisstefnur skóla. Verkefnið er stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education.

Lego keppnin tengist á margan hátt náttúrufræði og í mörgum skólum hefur hún verið á höndum náttúrufræðikennarans. Hægt er að lesa sér til um keppnina á síðu First Lego League á Íslandi og á Lego Mindstorms.

Keppnin miðar að því að vekja áhuga grunnskólanema á tæknihönnun og forritun.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanna er haldin árlega fyrir 5., 6. og 7. bekk, umsóknarfrestur er 12 apríl ár hvert.

Ungir vísindamenn er verkefni á vegum Evrópusambandsins sem hefur það markmið að efla hæfni ungs fólks til að vinna að rannsóknarverkefnum og stuðla að auknu frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda á sama tíma og því er ætlað að stuðla að samstarfi ungra vísindamanna þvert á landamæri þátttökuríkjanna.

Keppnin fer fram í tveimur áföngum. Fyrst mætast þátttakendur í landskeppni í sínu heimalandi. Sigurvegararnir taka síðan þátt í Evrópukeppni Ungra vísindamanna (EUCYS) sem fer fram í september ár hvert.

Tekið er á móti verkefnum í tíu flokkum vísindanna. Allir á aldrinum 15 til 20 ára geta tekið þátt. Þátttakendur þurfa ekki að vera fulltrúar skóla heldur geta ýmis félagasamtök og stofnanir verið bakland keppenda.

Facebook síða 

Varðliðar umhverfisins er yfirskrift verkefnasamkeppni grunnskólabarna í 5. til 10. bekk sem var haldin í fyrsta skipti vorið 2007. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að keppninni.

Vistheimt með skólum

Landvernd vinnur í samstarfi við Landgræðslu ríkisins með grunn- og framhaldsskólum að langtímaverkefni um vistheimt og mikilvægi hennar við að endurheimta landgæði, líffræðilegan fjölbreytileika og draga úr loftslagsbreytingum.  Verkefninu fylgir handbók með námsefni.

Verkefni sem er óvíst með stöðu á þegar þetta er ritað:

GERT –   Var/er verkefni sem snýst snýst um að auka áhuga nemenda á raunvísindum og tækni, verkmenntun og störfum sem þeim tengjast.   Verkefnstjóri var starfandi 2018 og gert skólar og gert fyrirtæki voru í samskiptum.

Boxið er framkvæmdakeppni framhaldsskólana. Markmiðið með keppninni er að kynna og vekja áhuga á tækni, tækninámi og störfum í iðnaði en hér á landi er verulegur skortur á tæknimenntuðu fólki. Haldið síðast 2018

Skildu eftir svar