Verkefnastjórar

Svava PétursdóttirSvava Pétursdóttir er stofnandi torgsins, hún er lektor á Menntavísindasviði og vinnur að eflingu náttúrufræðimenntunar.

Hún kenndi í grunnskólum í 15 ár og lengst af náttúrufræði. Árið 2012 lauk hún doktorsnámi frá Háskólanum í Leeds. Rannsókn hennar „Using ICT in lower secondary science education in Iceland“ fjallar um notkun á upplýsingatækni við náttúrfræðikennslu í efri bekkjum grunnskóla.

Hafa samband: svavap@hi.is

Símar 8681923 eða 5255364

Ester Ýr JónsdóttirEster Ýr Jónsdóttir er verkefnastjóri hjá Náttúrutorgi og við MVS HÍ frá 1. september 2013.  Ester Ýr er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, lauk Cand. Scient. í lífefnafræði frá Kaupmannahafnarháskóla 2005 og diplóma í kennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands 2006.  Hún kenndi við FSu 2005-2013 og var formaður Samlífs – Samtaka líffræðikennara 2010-2015.

Hafa samband: esteryj@hi.is

Sími: 869 6367

 

Birgir Ásgeirsson

 

Birgir U. Ásgeirsson starfaði hjá Menntavísndasviði HÍ sem verkefnastjóri NaNO og hjá Náttúrutorgi árin 2013-2016. Birgir er framhaldsskólakennari í eðlisfræði og starfar nú hjá Menntaskólanum í Reykjavík.

 

 

 

 

Hafdís Ragnarsdóttir starfaði sem verkefnastjóri á Menntavísindasviði í eflingu náttúrfræði með áherslu á menntun til sjálfbærni veturinn 2013-2014. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari í 34 ár og kennt á öllum skólastigum þó lengst á miðstigi.  Hafdís hefur starfað í  verkefnanefnd, Skóla á grænni grein eða Grænfánans, hjá Landvernd frá 2005.

Árið 1980 lauk hún BEd gráðu frá KHÍ með valgreinarnar líffræði og eðlisfræði.
Árið 2002 lauk hún meistaraprófi í umhverfisfræði frá HÍ.
Árið 2012 lauk hún viðbótarnámi í náttúrfræði fyrir starfandi grunnskólakennara.
Hafdís hefur unnið verkefni fyrir grunnskóla um sjálfbærni  fyrir Námsgagnastofnun.
BEd. Lokaverkefni 1980: Umhverfisfræðsla í íslenskum skyldunámsskólum.
MSc. lokaverkefni 2002: Framkvæmd umhverfisstefnu í einum grunnskóla.

 

Margrét Júlía Rafnsdóttir starfaði sem  verkefnastjóri á Menntavísindasviði í eflingu náttúrfræði með áherslu á menntun til sjálfbærni vetrunar 2012-2014.
Margrét Júlía lauk B.ed próf frá KHÍ 1985 með líffræði og samfélagsfræði sem sérgreinar og meistaraprófi í umhverfisfræði frá HÍ árið 2002. Lokaverkefni fjallaði um umhverfisfræðslu, samninga, lög og reglugerðir þar að lútandi. Margrét Júlía starfaði sem grunnskólakennari um árabil, hefur kennt öllum aldurshópum, en aðallega náttúrufræði á unglingastigi. Jafnframt hefur hún verið stundakennari í náttúrufræði og umhverfismennt við KHÍ, starfað sem ritstjóri í náttúrufræði hjá Námsgagnastofnun og sinnt fræðslu og ráðgjöf til skóla um umhverfismál ofl. Margrét Júlía hefur skrifað námsefni í náttúrufræði, umhverfisfræði og mannréttindum, m.a. handbókina Ein jörð fyrir alla um ókomna tíð, Kynfræðsluvefinn  www.barnasattmali.is, er einn af höfundum Heimurinn minn og verkefni um sjálfbærni ásamt Hafdísi Ragnarsdóttur.

 

Skildu eftir svar