Lota 5

Heimasíða námskeiðs

 Fimmta staðlota námskeiðsins fer fram mánudaginn 13. apríl kl. 13-17.

Staðsetning:

Tónmenntarstofa, Hofsstaðaskóla.

Dagskrá:

13:00 María Sophusdóttir og Kristjana Skúladóttir, náttúrufræðikennarar í Melaskóla.
Hvernig á að kenna eðlis- og efnafræði á yngra stigi og miðstigi? Glærur, matslistar.

14:30 Kaffihlé.

14:45 María Sophusdóttir og Kristjana Skúladóttir, náttúrufræðikennarar í Melaskóla.
Hvernig á að kenna eðlis- og efnafræði á yngra stigi og miðstigi?

15:50 Hlé.

16:00 Þátttakendur kynna „fiðrildi“.
Stutt lýsing á nálgun/umfjöllun á viðfangsefninu „hringrásir“. Sjá nárar neðar.

17:00 Dagskrárlok.

Viðfangsefni:

  • Efna- og eðlisfræði.
  • Hringrásir.

Fiðrildi:

Skrifaðu stutta lýsingu (fiðrildi) (1/2-1 bls.) um nálgun/umfjöllun á viðfangsefninu „hringrásir“ í kennslustundum þar sem fram koma raunhæf dæmi úr þínu skólastarfi. Kennarar sem kenna saman mega vinna fiðrildi saman. Þátttakendur munu kynna fiðrildi sín munnlega í næstu staðlotu. Fiðrildin mynda grunn að hugmyndabanka um leiðir sem hafa reynst vel í skólastarfi, jafnt hefðbundnar leiðir sem nýjar. Hugmyndabankinn verður settur inn á vefsíðu námskeiðsins með ykkar leyfi.