Jarðvegur, landlæsi, vistheimt og sjálfbærni í skólastarfi

Markmið námskeiðsins er að auka faglega þekkingu og færni grunnskólakennara á jarðvegsvernd, vistlæsi og sjálfbærni sem hluti af kennslu í grunnskólum.

Á Íslandi, og einnig á alþjóðavísu, eru jarðvegsvernd og sjálfbær nýting brýn viðfangsefni. Með tilkomu nýrrar aðalnámskrár eru gerðar auknar kröfur til kennara um að flétta menntun til sjálfbærni inn í kennsluna. Á námskeiðinu er bæði lögð áhersla á fræðilegan bakgrunn sem og að efla getu kennara í að skipuleggja og stýra verklegri kennslu, jafnt í skólastofunni sem og úti í náttúrunni.

Viðfangsefni: Hringrásir orku, næringar og vatns. Undirstöðuhlutverk jarðvegs og tengsl jarðvegsverndar við loftslagsbreytingar og lífbreytileika. Þanþol vistkerfa. Ástand lands og landlæsi. Framvinda. Vistheimt. Kynning á vistheimtarverkefni Landverndar, kynning á verkefnasafni, menntun til sjálfbærni.

Markhópur: Grunnskólakennarar, framhaldsskólakennarar einnig velkomnir.

Kennsla og leiðsögn: Jóhann Þórsson, vistfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins. Guðrún Schmidt, sérfræðingur í menntun til sjálfbærni hjá Landgræðslu ríkisins. Rannveig Magnúsdóttir verkefnistjóri og sérfræðingur hjá Landvernd. Eggert Lárusson, lektor við Menntavísindasvið HÍ.

Tími og staðsetning: Laugardaginn 25. ágúst kl. 9:30-15:30. ATH breytt dagsetning!

Kennt verður í húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands, Árleyni 22, Keldnaholti í Reykjavík. Boðið verður uppá kaffiveitingar og léttan hádegisverð.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur af landsbyggðunum geti tekið þátt á námskeiðinu í gegnum netið.

Skráningargjald: Kr. 5.000.-, skráning er bindandi.

Skráning: Skráning hér.
Skráningarfrestur er til og með 15. ágúst 2018.

Nánari upplýsingar má finna á http://natturutorg.is/jardvegur2018/ (hér fyrir neðan), hjá Guðrúnu Schmidt (gudrun@land.is / 4883063) eða Ester Ýri Jónsdóttur (esteryj@hi.is).

Námskeiðið er styrkt af Endurmenntunarsjóði grunnskóla og að því standa NaNO hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Landgræðsla ríkisins í samstarfi við Landvernd.

Dagskrá laugardaginn 25. ágúst 2018

9:30-10:30 Jarðvegur og mikilvægi hans.
Jóhann Þórsson, Landgræðsla ríkisins.
10:30-10:35 Kaffihlé.
10:35-11:35 Land, ástand lands og landlæsi.
Jóhann Þórsson, Landgræðsla ríkisins.
11:35-11:45 Kaffihlé.
11:45-12:25 Kynning á Vistheimtarverkefni Landverndar.
Rannveig Magnúsdóttir, verkefnisstjóri og sérfræðingur hjá Landvernd.
12:25-13:00 Léttur hádegisverður.
13:00-14:00 Ekki bara drullumall – verklegar æfingar um jarðveg og vistheimt.
Eggert Lárusson, Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
14:00-14:15 Kaffihlé.
14:15-15:10 Menntun til sjálfbærni: Jarðvegsvernd og sjálfbær þróun í kennslu.
Guðrún Schmidt, Landgræðsla ríkisins.
15:10-15:30 Umræður og námskeiðsmat.
Eggert Lárusson, Menntavísindasvið HÍ og
Guðrún Schmidt, Landgræðsla ríkisins.

Nánari lýsing á námskeiðinu

Markmið: Að auka faglega þekkingu og færni grunnskólakennara á jarðvegsvernd, landlæsi, vistheimt og sjálfbærni sem hluta af kennslu í grunnskólum. Námskeiðinu er ætlað að:

  • efla þekkingu kennara á undirstöðuhlutverki jarðvegs innan landvistkerfa,
  • varpa ljósi á mikilvægi jarðvegsverndar í samfélagslegu og vistfræðilegu samhengi,
  • fjalla um hvernig hægt sé að bregðast við ef ósjálfbær landnýting hefur leitt til landhnignunar og sóunar á auðlindum,
  • efla getu kennara í að skipuleggja og stýra verklegri kennslu á sviði jarðvegsverndar og sjálfbærni.

Innihald námskeiðsins: Fyrri hluti námskeiðs verður um undirstöðuhlutverk jarðvegs innan landvistkerfa og mikilvægi jarðvegsverndar í samfélagslegu og vistfræðilegu samhengi. Einnig verður varpað ljósi á tengsl jarðvegsverndar við loftslagsbreytingar og lífbreytileika og hún sett þar með í samhengi við alþjóðlegar áskoranir. Fjallað verður um hringrásir orku, næringar og vatns og hið fjölþætta hlutverk jarðvegs skoðað. Fjallað verður um þanþol vistkerfa, jarðvegsrof og ástand lands og hvernig við getum lesið landið, þ.e. að sjá og skilja þær vísbendingar sem ásýnd lands gefur um ástand þess. Síðan verður skoðað hvað er hægt að gera og í því samhengi fjallað m.a. um vistheimt og framvindu.

Í seinni hluta námskeiðs verður rætt um möguleika á því hvernig kennarar geta komið þessari þekkingu á framfæri við nemendur. Kynnt verður m.a. vistheimtarverkefni Landverndar þar sem grunn- og framhaldsskólanemendur læra um vistheimt og landgræðslu með því að taka virkan þátt í rannsóknum og vistheimtaraðgerðum. Fleiri kennsluhugmyndir verða kynntar úr „Soils Challenge Badge“ verkefnasafni frá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Þar eru 56 verkefni fyrir mismunandi aldurshópa frá 5 ára nemendum og uppúr. Þátttakendur munu prófa valin verkefni úr ýmsum áttum. Síðan verður fjallað um menntun til sjálfbærni og þær kröfur sem eru gerðar samkvæmt nýrri aðalnámskrá á því sviði. Kynnt verða skólaverkefni um jarðvegsvernd sem dæmi um hvernig hrinda megi í framkvæmd grunnþættinum sjálfbærni í skólastarfi.

Leiðbeiningar um þátttöku á vef

Hægt verður að taka þátt í námskeiðinu í gegnum vef með fjarfundarkerfinu Adobe Connect. Kerfið er veflægt og þátttakendur geta verið hvar sem er þar sem netsamband er gott, helst tengt með snúru.

Hér eru leiðbeiningar fyrir þátttakendur sem gott er að fara í gegnum áður en námskeiðið hefst. Slóðin að vefstofunni verður send þátttakendum fyrir námskeiðið. 

Kennarar og glærur munu verða í mynd, nauðsynlegt er fyrir þáttakendur að hafa góð heyrnartól, og helst hljóðnema. Myndavél gerir upplifunina ánægjulegri en er ekki nauðsynleg.

Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá upplýsingar um námskeið og aðra viðburði á vegum Náttúrutorgs og tengdum aðilum

* fylla þarf í þessa reiti



Snið tölvupósts