Náttúrufræðikennurum stendur til boða námskeið á Menntavísindasviði á vorönn 2014: Náttúruvísindi á 21. öld: GSS208F
- Starfandi kennurum stendur til boða að kynnast nýjustu tækni og vísindum með tengingu við stofnanir og fyrirtæki á Íslandi.
- Kennt verður í 3 vikna lotum og farið verður í valin þverfagleg viðfangsefni með áherslu á framtíðina, t.d. líftækni, orkuframleiðslu, umhverfi og sjálfbæra þróun.
- Loturnar verða eftir hádegi á mánudögum og þriðjudögum og fá nemendur að velja sér lotur til að mæta áhugasviðum. Sjá dags- og tímasetningar hér.
- Þátttakendum úti á landi stendur til boða að fylgjast með í viku eitt og þrjú í hverju þema í gegnum fjarfundarbúnað en í viku tvö er mætingarskylda.
- Áhersla verður á tengsl við atvinnulífið, t.d. með vettvangsheimsóknum.
- Þátttakendur verða bæði nemendur við HÍ og starfandi kennarar og munu þeir vinna að kennsluefni sem nýst getur í kennslu í grunn- og framhaldsskólum.
- Hægt er að sækja um styrk fyrir námskeiðsgjaldi í Vonarsjóð FG eða Vísindasjóð FF.
Nánari upplýsingar í kennsluskrá eða með tölvupósti á birgira@hi.is, esteryj@hi.is og allyson@hi.is.