Margrét Júlía Rafnsdóttir og Hafdís Ragnarsdóttir vinna að eflingu náttúrufræði í skólastarfi með áherslu á sjálfbærni, sinna samvinnu við háskóla og gerð námsefnis. Undir flipanum Sjálfbærni eru verkefni sem þær eru að vinna að.
Þar má nefna mats- og greiningarlista ætlaða skólum í sjálfbærnivinnu.
Einnig umfjöllun um þróunarverkefni Hafdísar Að efla læsi í náttúrufræðikennslu þar sem finna má fjölmargar kennsluhugmyndir.