Núna í desember færði Ragnar Þór Pétursson kennurum það sem hann kallar litla jólagjöf. Hann skrifaði færslu á Eyjuna og listaði upp allt það efni sem hann hefur sett saman, við myndum kalla það stóra jólagjöf! Við birtum færsluna hans hér alla óbreytta til að tryggja að gjöfin glatist ekki og fari sem víðast.
Færslan er birt án hans leyfi en samt alveg í anda Ragnars Þórs sem hefur verið ötull að birta og deila allri sinni vinnu. Við þökkum Ragnari Þór þessa rausnalegu gjöf og vonum að hún verði öðrum til fyrirmyndar og gagns.
Þriðjudagur 24.12.2013 – 14:41 – FB ummæli (33)
Lítil jólagjöf til kennara
Í tilefni þess að ég hætti að kenna við annaskil langar mig að gefa þeim kennurum sem geta nýtt sér eitthvað af námsefninu sem ég hef gert síðustu misseru aðgang að efninu. Ef annað er ekki nefnt sérstaklega má nota þetta eins og hver vill. Þetta er slatti af náttúrufræði og íslensku og smotterí af samfélagsfræði og heimspeki.
Verði ykkur að góðu.
Gleðileg jól!
Náttúrufræði
Saga efnafræðinnar I og II (byggt á Bill Bryson)
Frumur og sjálfkviknun lífs (ibooks)
Hooke, Wren, Halley & Newton (um aðdraganda Principiu) (ibooks)
Atóm Bohrs og lotukerfi Mendelejevs
Hvað vitum við? (um vísindalegan efa)
Jarðskjálftar, risaflóðbylgjur og kjarnorkuver
„Geimverurnar“ í Roswell (afrit)
Allt sem þú vildir vita um kynlíf…. 1
Allt sem þú vildir vita um kynlíf… 2
Nokkrar merkar sálfræðitilraunir
Youtube-myndbönd
Efnafræði (10)
Orka (11)
Kraftar (9)
Ýmislegt (3)
Samfélagsfræði
Menn og menning um víða veröld
Konur
Er hefðbundinn skóli á rangri leið?
Íslenska
Hugsuðir – skapandi íslenskunám
56 lestextar og kveikjur með verkefnum
Verkefni tengt fyrsta þætti Orðbragðs
Shakespeare: Makbeð, Snegla tamin, Rómeó og Júlía