Lífríkið og útikennsla.

Nú er vorið komið og sumarið handan við hornið. Síðustu menntabúðir þessa vetrar verða fimmtudaginn 22. maí kl. 14:30-16:30 í Sæmundarskóla. Tilvalið er að smella sér og fá hugmyndir sem nýst gætu úti með nemendum núna á vordögum. Að þessu sinni verða tvær vanar konur með innlegg en allar hugmyndir einnig vel þegnar.  Skráning og nánari upplýsingar hér. 

Málstofa 21. maí

RAUN- Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun  fær góða gesti miðvikudaginn 21. maí  kl.15:00-17:00 í stofu H101 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð. Þeir Brant G. Miller frá Háskólanum í Idaho og Joel Donna frá Háskólanum í Minnesota koma og verða með erindi um tvö verkefni tengd náttúrufræðimenntun. Ágripin má finna á ensku hér að neðan. Allir velkomnir Continue reading

Verklegar æfingar með tölvutengdum mælitækjum

Hér er gluggað í B.Ed. ritgerð Kristín Brynhildur Davíðsdóttir skrifar 2006 um stafræn mælitæki. Ritgerðin heitir „Tölvur í eðlisvísindum: Verklegar æfingar með tölvutengdum mælitækjum fyrir nemendur á unglingastigi.“ Háskólinn á Akureyri Kennaradeild, Lokaritgerð B.Ed. http://skemman.is/handle/1946/334

Stór hluti af ritgerðinni (byrjar bls. 19) eru leiðbeiningar fyrir kennara og nemendur , 12 verklegar æfingar með kennsluleiðbeiningum með ítarupplýsingum um námsefnið sem tengist mælitækinu og verkefnablöðum fyrir nemendur.

 

Continue reading

Umhverfisvefur Háskóla Íslands og Grænir dagar

Háskóli Íslands hefur sett sér markmið í sjálfbærni- og umhverfismálum sem taka til átta efnisflokka sem spanna allt frá námi og rannsóknum til hins daglega lífs háskólaborgara. Nýr umhverfisvefur hefur verið opnaður á heimasíður Háskóla Íslands undir heitinu; Sjálfbærni og umhverfi. Þar má meðal annars finna umhverfis- og sjálfbærnistefnu Háskóla Íslands, hugmyndir um hvað hver og einn getur gert til þess að stuðla að sjálfbæru samfélagi og yfirlit yfir viðburði sem tengjast umhverfismálum. Continue reading

Meiri menntabúðir

Ákveðið hefur verið að gefa í og fjölga menntabúðum næstu mánuði. Bætt hefur verið við menntabúðum um lífheiminn, loftlagsbreytingar, grunnþáttinn sjálfbærni og  lífríkið.  Með þessari viðbót er ætlunin að höfða einnig til náttúrufræðikennara á miðstigi grunnskólans. Umsjón með þessum menntabúðum hefur Hafdís Ragnarsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjórar á Menntavísindasviði HÍ.

Sem fyrr er áherslan á að deila hugmyndum og reynslu um verkefni og viðfangsefni sem eru margreynd og virka í kennslu. Auglýst er eftir innleggjum frá þátttakendum en skipuleggjendur tryggja ávallt að á dagskrá sé nóg af áhugaverðum framlögum.

Dagskrá menntabúða Náttúrutorgs má nálgast í heild sinni hér.

 

2013 mars MB efnafræði

Menntabúðir og afrakstur þeirra

Náttúrutorg hefur staðið fyrir menntabúðum í vetur og nær dagskráin fram á vor.  Okkur finnst stórmerkilegt hvað hægt er að gera góða og skemmtilega hluti með lítilli fyrirhöfn.  Allir kennarar sem beðnir hafa verið að hýsa búðirnar hafa sagt já undireins svo auglýsum við eftir framlögum og alltaf hafa komið nóg framlög til að fylla tímann og rúmlega það.
Til að skrásetja viðburðinn og safna upplýsingum sem komið gætu öðrum að gagni er alltaf skráðar niður það helsta sem kemur fram og teknar myndir. Slíkt segir ekki alla söguna en alltaf má hafa samband til að fá frekari upplýsingar og ná í þá sem þekkinguna hafa.  Við vonumst líka til að þessi umfjöllun kveiki í fleirum að mæta í næstu búðir. Umfjöllun um fyrri menntabúðir má finna efst á síðu mennabúða undir tenglinum liðnar menntabúðir.