VÍSINDI Í NÁMI OG LEIK
Laugardaginn 30. mars 2019 verður efnt til ráðstefnunnar Vísindi í námi og leik í samstarfi Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Málþings um náttúrufræðimenntun*. Á ráðstefnunni verður fjallað um nám og kennslu í náttúruvísindum, stærðfræði og tækni, þ.m.t. upplýsingatækni, í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Ráðstefnan er ætluð kennurum og starfsfólki í leik-, grunn-, og framhaldsskólum og sérstaklega er horft til þess að umfjöllunarefni hafi hagnýtt gildi í skólastarfi. Auk aðalfyrirlestra og pallborðsumræðna verða málstofuerindi, vinnustofur og veggspjöld þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að námi og kennslu með sérstakri áherslu á fyrrnefnd viðfangsefni.Upplýsingar um ráðstefnuna má einnig finna á Facebooksíðum MSHA og Náttúrutorgs og á síðu Miðstöðvar skólaþróunar.
Skráning á ráðstefnu
Veggspjald til útprentunar- endilega prentið út og setjið upp í skólum ykkar.
*Að baki Málþings um náttúrufræðimenntun standa ýmis félög og samtök, má þar nefna: Samlíf – samtök líffræðikennara, Félag raungreinakennara, NaNO – Náttúruvísindi á nýrri öld, GERT, RAUN – Rannsóknar-stofu um náttúrufræðimenntun, Flöt – samtök stærðfræðikennara og Félag leikskólakennara. Að auki koma Menntavísindasvið HÍ og Kennaradeild HA að ráðstefnunni.