Kallað er eftir efni á Málþing um náttúrufræðimenntun verður haldið 31. mars og 1. apríl 2017 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð á vegum Rannsóknarstofu um náttúrufræðimenntun (RAUN) við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í samstarfi við ýmsa aðila. Lýsing á efni er send inn rafrænt hér: https://goo.gl/forms/KDcUGSdshxuikUW22
Föstudagslesningin – sú fyrsta á nýju ári
Verkefnisstjórar NaNO og Náttúrutorgs óska þér gleðilegs árs!
Fyrsta FÖSTUDAGSLESNING ársins er skýrsla um verkefni GERT skólaárið 2015-2016 og við bendum ykkur á að lesa samantektina sem er aftast í skýrslunni en þar greina skólar frá því hvernig samstarfi við fyrirtæki og stofnanir var háttað og margir geta fengið góðar hugmyndir þaðan.
Við minnum á málþing um náttúrufræðimenntun sem haldið verður dagana 31. mars og 1. apríl 2017 og vonumst til að sjá ykkur sem flest þar.
Ef þú ert ekki búin/n að „líka við“ síðu Náttúrutorgs á Facebook þá hvetjum við þig til að gera það hér og einnig að skrá þig á póstlista Náttúrutorgs svo þú missir ekki af tilkynningum um málþing, menntabúðir, námskeið o.fl.
Föstudagslesningin
Ágæti kennari,
Hvaða efni tengt sjávarútvegi tekur þú fyrir með þínum nemendum og með hvaða hætti gerir þú það? Ert þú til í að deila með okkur gagnlegu efni sem þú hefur fundið á netinu? Endilega settu áhugaverðar og gagnlegar slóðir í „ummæli“.
Hér er tiltölulega nýr kennslu- og upplýsingavefur sem nefnist Trillan á síðu Íslenska sjávarklasans.
Óskað er eftir kennurum til að prófa og meta námsefni
Kennurum stendur til boða að prófa verkefnin í kennslu og skila mati á þeim til verkefnisstjóra NaNO – greitt er fyrir vinnuna.
Nokkur verkefni eru komin inn á vef NaNO en unnið er jöfnum höndum að því að koma fleiri verkefnum inn á vefinn.
Hafir þú áhuga á að prófa verkefni í kennslu sendir þú póst á Ester Ýr, [email protected].
Athugaðu að þó verkefni séu skráð fyrir ákveðið skólastig er í flestum tilfellum auðvelt að aðlaga þau að öðrum skólastigum.
Listi yfir verkefni (PDF). Vinsamlega tilgreinið kóða þess verkefnis sem þið hafið áhuga á að fá sent til prófunar, t.d. JA1 o.s.frv. Kennarar geta óskað eftir fleiri en einu verkefni til prófunar.
Kveðja frá verkefnisstjórum NaNO
Hagnýt jarðfræði – sýnatökuferð með Snæbirni Guðmundssyni
Þann 13. okt. 2016 fór hópur kennara stuttan leiðangur í nágrenni höfuðborgarinnar að safna jarðfræðisýnum til að nota í kennslu. Hópinn leiddi Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur. Veður var ansi hressandi, hífandi rok og grenjandi rigning!
Í ferðinni var kennurum gert kleift að auðga jarðfræðisýnasafn sinna skóla og þar með stuðla að fjölbreyttari verkefnum í jarðfræðikennslu. Dæmi um sýni sem var aflað eru gjallmolar, þétt og fallegt bólstraberg, hraun og móberg, þetta allra einfaldasta en um leið það mikilvægasta hérna á Íslandi.
Ferðin var farin í kjölfar endurmenntunarnámskeiðs sem haldið var fyrir náttúrufræðikennara í grunnskólum Kópavogs og Mosfellsbæjar.
Takið dagana frá!
Málþing um náttúrufræðimenntun 2017
Málþing um náttúrufræðimenntun verður haldið 31. mars – 1. apríl 2017. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði, erindi, smiðjur og pallborð. Kallað verður eftir framlögum í byrjun janúar 2017.
Að þinginu standa:
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
Félag leikskólakennara,
Félag raungreinakennara,
GERT, grunnmenntun efld í raunvísindum og tækni,
Háskólinn á Akureyri,
Samlíf, samtök líffræðikennara.
Frekari upplýsingar veitir Ester Ýr Jónsdóttir, verkefnisstjóri NaNO: [email protected]
Mega Menntabúðir
Nú er blásið til MEGA menntabúða með mörgum samstarfsaðilum. Búðirnar verða miðvikudaginn 28. september kl. 16:15 -1 8:15 til að spjalla, segja frá og kynnast nýju fólki. Tilvalið er fyrir náttúrufræðikennara að segja frá samþættum verkefnum, þema- verkefnum, heimildavinnu, nánast hverju sem er sem þið haldið að gagnist öðrum, sérlega ef þau tengjast upplýsingatækni.
Látið endilega sjá ykkur, náttúrufræðikennarar svo og allir kennarar á öllum skólastigum. Sjá auglýsingu og skráningu hér fyrir neðan.
Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Á dagskrá hjá Endurmenntun HÍ eru nokkur námskeið sem gætu gagnast náttúrufræðikennurum.
Námskeiðin eru:
• Undraheimur Þingvalla
• Listin að mynda norðurljós
• Jarðfræði höfuðborgarsvæðisins
• Brunasandur – Yngsta sveit á Íslandi
Sjá auglýsingu frá Endurmenntun
Hvað er í fjörunni?
NaNO námskeið
Hvað er í fjörunni? með Kristínu Norðdahl
Farið verður með kennara í fjöru og skoðað það sem fyrir augu ber. Annars vegar verða lífverur skoðaðar frá líffræðilegu sjónarhorni og hins vegar hvernig unnt sé að nálgast fjöruferðir sem þessar á hagnýtan hátt í kennslu með nemendum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þætti í kennslu og hagnýt vinnubrögð annars vegar og verklegar æfingar án flókinna tækja eða sérstakri tilraunastofu hins vegar.
Hver: Grunnskólakennarar sem koma að náttúrufræðikennslu.
Hvar: Við Ægisíðu við gömlu grásleppuskúrana. Í framhaldi í stofu K-102 í húsnæði MVS HÍ við Stakkahlíð.
Hvenær: Mánudaginn 19. september kl. 13:00-15:30.
Skráning: Skráning fer fram rafrænt hér. Athugið að skráning er bindandi.
Verð: Námskeiðið er kennurum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar veitir Ester Ýr [email protected].