Hér á þessari síðu verður safnað saman upplýsingum um hvar megi nálgast námsefni þá aðallega kennslubækur til kennslu náttúrufræði í grunnskólum. Tengla á rafrænt efni eru í tenglasafni.
Menntamálastofnun er helsti útgefandi námsefnis. Á vefnum má finna, kennslubækur, kennsluleiðbeiningar, myndbönd og gagnvirkt efni.
Sjávarútvegur á 21. öld- verðmæti úr hafinu.
Námsefni fyrir miðstig grunnskóla
Tilraunaútgáfa 2017
Ragnheiður Tinna Tómasdóttir
Rafbækur Ragnars Þórs Pétursonar. Á síðu hans eru nú 21 bók, þær eru birtar á ibooks formi og sumar eru einnig fáanlegar á pdf. Höfundur gefur leyfi til að nýta bækurnar til náms og kennslu án endurgjalds en leyfi þarf til að nýta það að hluta eða heild á öðru formi. Bækurnar eru skrifaðar í kringum ákveðið þema og gjarnan fléttað kringum sögur eða kafla úr sögu vísindanna. Þær eru ríkar af myndum og sumar innihalda glósur og verkefni.
Skólavefurinn býður upp á eitthvað af námsefni tengt náttúrufræði undir flipanum ýmist efni. Vefurinn krefst áskriftar. Í boði er:
– efni sem heitir Hvalir, sem inniheldur gagnvirkt efni.
– Eðlisfræði efni þar sem fjallað er um eðlismassa, lotukerfi og hamskipti.
Fiskabókin mín fyrir yngstu nemendurna.
Litla blómabókin um að þekkja blóm og jurtir.
Saga úr Síldarfirði, kennslubók á pdf formi og issuu. Segir síldarsögu Íslendinga, bókin er sögð ætluð 12 ára börnum.
Vistheimt á gróðursnauðu landi er hefti frá Landvernd þar er bæði lesmál og ítarleg lýsing á vistheimtarverkefni. PDF og Issuu.
Vefurinn Náttúra Skagafjarðar er með mikið af lesefni, verkefnahugmyndum og umræðuvaka um land og náttúru sem geta átt við á öðrum stöðum en Skagafirði.
Allar ábendingar um viðbætur á þessa síðu er vel þegnar svavap(hja)hi.is