Lota 7

Heimasíða námskeiðs

 Sjöunda staðlota námskeiðsins fer fram miðvikudaginn 27. maí kl. 13-17.

Staðsetning:

Stofa 103 og 104 í Garðaskóla.

Dagskrá:

13:00 Sólrún Harðardóttir Námsmatsstofnun og Skúli Skúlason Háskólanum á Hólum.
Um lífríki í vatni og verkefni dagsins.

Lesefni (ítarefni):

  • Sjá lista yfir bækur neðar.

13:30  Sólrún Harðardóttir og Skúli Skúlason.
Vífilsstaðavatn – vettvangsferð.

15:30 Kaffihlé í Garðaskóla.

15:45 Greining og skoðun sýna.
Kennsla um líf í fersku vatni.

17:00 Dagskrárlok.

Viðfangsefni:

  • Ferskvatn, lifandi og lífvana þættir.

Efni og áhöld (þátttakendur sjá sjálfir um):

  • Komið í stígvélum og hlýjum fatnaði!
  • Sjónauki
  • Myndavél (fyrir þá sem vilja)
  • Bækur (takið með það sem er til í ykkar skóla – munið að merkja bækurnar).
    • Greiningarlyklar um smádýr e. Hrefnu Sigurjónsdóttur og Snorra Sigurðsson.
    • Hornsíli e. Sólrúnu Harðardóttur
    • Lífríkið í fersku vatni e. Stefán Bergmann.
    • Veröldin í vatninu e. Helga Hallgrímsson.
    • Vífilsstaðavatn e. Sólrúnu Harðardóttur.
    • Fuglahandbækur.
  • Glerkrukkur með loki, til sýnatöku.
    • T.d. gamlar sultukrukkur.
  • Víðsjá/r.
    • Æskilegt er að hverjir tveir úr sama skóla taki með sér eina til tvær víðsjá/r (skilið eftir í Garðaskóla á meðan á vettvangsferð stendur).
    • Takið einnig með ykkur petrískálar undir sýnin, pípettur/dropateljara og pinsettur.
  • Plastbakkar/-box/-fötur undir sýni.
  • Háfur.
  • Uppþvottabursti með mjúkum hárum (nóg að hver skóli komi með einn bursta).